Hrafnaborg 12, 190 Vogar 51.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
2 herbergi
68 m2
51.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2022
  • Brunabótamat 39.150.000
  • Fasteignamat 42.350.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Fallegt, bjart og einstaklega vandað nýlegt tveggja herbergja raðhús á einni hæð með mikilli lofthæð.
Eignin er skrá 68,4 fm í Fasteignaskrá.

Eignin samanstendur af anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhúsi, stofu ásamt geymslulofti yfir baðherbergi.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Hörður Sverrisson Lgf. í síma nr 899-5209 eða [email protected]


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

- Gólfsíðir gluggar í alrými.
- Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita.
- Aukin lofthæð.
- Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði.
- Lagnaðleið fyrir heitan pott.
- Corian steinn með innfelldri handlaug á baðherbergi.
- Heimilistæki frá AEG
- Gert er ráð fyrir 2 bílastæðum á hvert hús.
- Lagt fyrir snjóbræðslu í gangstétt fyrir framan húsið.
- Vandað viðarparket á gólfi, flísar á baðherbergi.

Arkitekt húsanna er Gylfi Guðjónsson og Félagar ehf


Í Vogum á Vatnsleysuströnd fer nú fram mikil uppbygging. Framkvæmdir eru hafnar við Grænuborgar- hverfi í fjölskylduvænni íbúabyggð í návígi við náttúruna. Í Vogum er öflug íbúaþjónusta, leik- og grunnskóli og góð aðstaða til líkamsræktar og útivistar.

Nánari lýsing.
Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Stigi upp á rúmgott geymsluloft.
Baðherbergið er rúmgott með flísalögðu gólfi og veggjum, stór sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, falleg innrétting með neðri skáp með ljúflokunum á skúffum, upphengt salerni. 
Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri innréttingu með vönduðum tækjum, span helluborð með viftu yfir, innbyggð uppþvottavél, og innbyggður ísskápur með frysti, parket á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á verönd til suðurs. 

Bílastæði er fyrir framan hvert hús og eru malbikuð. Lagnir fyrir snjóbræðslu eru lagðar í stéttir við aðkomuhlið íbúða. Tengibúnaður og tenging er á kostnað kaupenda.
 
Frágangur utanhúss
Útveggir eru úr forsmíðuðum einingum, léttbyggðir, þ.e. 45x145 mm timburgrind með 6“ einangrun í útveggjagrind.  Klætt er utan á timburgrind með 9mm krossviði og er hann varinn með öndunardúk.  Ysta byrði útveggja er lárétt 18mm lituð bárujárnsklæðning og að hluta lárétt nótuð timburklæðning.  Veggir á milli íbúða eru léttir timburveggir með brunaþol sem einnig uppfylla kröfur fyrir lofthljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga.
Þak er timburþak/sperruþak, pappalagt og heilklætt með 18mm litaðri bárujárnsklæðningu.  Þak er einangrað með 220mm steinullareinangrun.
Gluggar, hurðir eru ál/trégluggar frá viðurkenndum framleiðanda.
Sökklar eru einangraðir bæði að innan og utan með 65mm frauðplast einangrun.  Botnplata er einangruð með 75mm frauðplast einangrun.
Ídráttarrör út í bílaplan fyrir mögulega rafhleðslu fylgir. Einnig eru ídráttarrör fyrir vatn og rafmagn fyrir heitan pott, fyrir hverja íbúð.
Sameiginlegt sorptunnuskýli á steyptri plötu fyrir allar íbúðirnar er staðsett við enda bílastæða.

Frágangur innanhúss.
Innveggir eru smíðaðir úr timburgrind klæddir með plötum. Innveggir uppfylla kröfur fyrir lofthljóðeinangrun innbyrðis á milli herbergja innan íbúðareiningar.
Gólf eru lögð með 16mm plankaparketi 
Baðherbergi er flísalagt með 60 x 60 cm flísum, bæði gólf og veggir, en loft er málað. Geymsluloft fyrir ofan hvert baðherbergi.
Innréttingar eru af vandaðri gerð frá Wilbergs og WBK. Baðinnrétting er úr melamine. Fataskápar í öllum svefnherbergjum frá HTH.
Heimilistæki verða frá AEG. íbúðinni fylgir span helluborð, vifta, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.